Fréttir

Sund | 15. júní 2007

Skrifað undir samning við Samkaup

Þann 13. júní síðastliðinn skrifuðu Samkaup og ÍRB, sunddeildir Keflavíkur og Njarðvíkur, undir 2ja ára auglýsingar- og styrktarsamning. Samkaup hefur um árabil verið ötull styrktaraðili sundíþróttarinnar í Reykjanesbæ og stutt sundlið ÍRB í fjölda verkefna, stórum og smáum. Það er ÍRB mikils virði að hafa öflugan aðila á borð við Samkaup sér við hlið, og horfir félagið björtum augum til áframhaldandi samstarfs um leið og það þakkar Samkaupum stuðninginn.