Fréttir

Snúningar æfðir á frábærum æfingadegi
Sund | 6. október 2013

Snúningar æfðir á frábærum æfingadegi

Yfir 40 ungir sundmenn mættu á frábæran æfingadag á laugardaginn. Við þökkum þjálfurunum Anthony Kattan og Helgu Eiríksdóttur sem og eldri sundmönnunum Ólöfu Eddu Eðvarðsdóttur, Aleksöndru Wasilewska, Baldvin Sigurðssyni og Þresti Bjarnasyni kærlega fyrir. Þau stóðu sig öll vel í að kenna krökkunum snúninga og hvernig á að mynda góða straumlínu og voru þolinmóð við ungu sundkrakkana.
Allir um ungu sundkrakkarnir tóku þátt í 50 m keppni í lokin og voru sumir að prófa það í fyrsta sinn. Endað var á 25 mínútna leiktíma í Vatnaveröld. Við þökkum öllum fyrir komuna og óskum ykkur góðs gengis mótinu um næstu helgi.