Fréttir

Sund | 11. nóvember 2010

Speedo umboðið með sölubás á ÍM25

Í tilefni þess að ÍM25 verður í Laugardalslaug um helgina verðum við í Speedo umboðinu með sölubás á mótinu, föstudag 15-18 og laugardag 9-11:30 og 15-18  þar sem við bjóðum upp á það helsta fyrir sundmanninn á heildsöluverði.  

Eldri tegundir af löglegum keppnisfatnaði Fastskin FSII  ætlum við að selja á snarlækkuðu verði.  Hægt að nota til keppni eða æfinga.

Kneeskin á 5990,-

Sundbolir og jammer á 3990,- 

Dragskýlur 2990,-

Velkomin á laugardaginn í jólagjafainnkaup í Speedo og Puma umboðinu á heildsöluverði og auka 20% afslætti í Sport-outlet á milli 12-15. 

Þar gefst öllu sundfólki og þeirra áhangendum að versla Speedo og Puma á heildsöluverði.

Þeir sem ætla að nýta sér aukaafsláttinn í Sport-outlet munu fá afsláttarmiða á söluskrifstofunni og/eða á sölubási okkar í Laugardalslaug sem þeir geta framvísað í Sport-outlet.

Ef þið eruð ekki á bíl þá munum við bjóða uppá rútuferðir með Minibus í Puma og Speedo umboðið á laugardaginn milli kl. 11:45 – 14:30

Minibusinn verður staðsettur fyrir utan Laugardalslaugina merktur í framrúðu með Speedo merkinu, hann fer á ca. 30 mínútna fresti.  Hægt er að hringja upp í umboð á laugardeginum til að vera viss um tímasetningar í síma 530 9400. 

Minibusinn fer frá Laugardalslaug korter í og korter yfir og svo til baka frá Speedo umboðinu á heila og hálfa tímanum.

Aðrir afslættir gilda ekki, þar sem heildsöluverð er talsvert betra en afsláttur á Speedokorti.  Þetta verður bara í boði á laugardeginum. frá 12-15 og bendum við á að þetta gildir fyrir alla sundmenn sem og þeirra áhangendur.   

Heildsalan og Sport-outlet eru staðsett í Vínlandsleið 6-8, Grafarholti.