Fréttir

Sund | 5. júlí 2010

Stóðu sig vel á NÆM

Þær sundstöllur Ólöf Edda Eðvarðsdóttir og Jóhanna Júlíusdóttir stóðu sig vel á Norðurlandameistaramóti æskunnar sem fram fór í Drammen í Noregi um helgina. Þar kepptu þær með unglingalandsliði SSÍ og  báðar í þremur greinum.  Þar voru þær að bæta sína bestu tíma eða voru alveg við þá, flottur árangur hjá þessum framtíðarsundmönnum Íslands. Til hamingju með árangurinn sundkonur:-) Stjórn og þjálfarar.