Fréttir

Stór hópur ÍRB krakka á Akranesleika
Sund | 30. maí 2013

Stór hópur ÍRB krakka á Akranesleika

Stór hópur sundkrakka úr ÍRB heldur á morgun af stað á Akranesleikana. Brottför með rútunni verður frá Vatnaveröld föstudaginn 31. maí kl. 12:30. Við gistum í Grundaskóla sem er rétt hjá lauginni, þar verður matur einnig framreiddur: 

Morgunmatur - laugardag og sunnudag.

Hádegismatur - laugardag og sunnudag.

Kvöldmatur - föstudag og laugardag.

Ásamt ávöxtum og samlokum á bakka.

Athugið að gott er að senda krakkana með nesti til þess að borða eftir hádegi á föstudeginum.

Kvöldvaka er á laugardagskvöldinu fyrir 12 ára og yngri (meðan eldri synda) þar sem töframaður skemmtir krökkunum og spilað verður bingó :-)

Ef einhverjir eiga eftir að ganga frá greiðslu vegna ferðarinnar vinsamlegast gangið frá því sem allra fyrst. 

 

Keppendalisti

Tímaáætlun

Akranesleikasíðan - ýmsar upplýsingar og úrslit verða birt þar.