Fréttir

Sund | 11. mars 2011

Stuð á Bikar

1. hluta Bikarkeppni SSÍ í sundi er lokið í Vatnaveröld. Sundmenn ÍRB voru að standa sig mjög vel og meðal annars áttu allar stúlkurnar okkar sína bestu tíma í dag, 100% bestu tímar. Bæði kvenna og karlaliðið okkar keppa í 1. deild en einnig eru þau með keppni á milli sín sem ber heitið Keppni kynjanna. Þar er keppt um veglegan bikar og þar gildir árangur í keppninni ásamt hvatningu og frumleika. Bæði liðin mættu því nokkuð skrautleg til leiks í dag eins og sjá má á meðfylgjandi myndum.

Lokastaðan í dag er sú að kvennaliðið okkar er í 2. sæti rétt á eftir liði Ægis og karlasveitin er í 5. sæti.