Sumarfrí nálgast
Þó ótrúlegt sé er komið að lokum tímabilsins hjá sumum hópum.
Eftir Landsbankamót nálgast svo lokin á æfingatímabilinu hjá flestum hópum.
Tímabilið 2014/2015 hefur verið frábært hjá okkur á margan hátt. Mikil ánægja hjá sundmönnum á öllum aldri, árangur í lauginni, nýr vinskapur, skemmtilegir dagar og persónulegar framfarir.
Við vonumst til að sjá ykkur öll aftur á tímabilinu 2015/2016. Við erum fremsta aldursflokkasundlið landsins og veitum frábæra undirstöðu fyrir árangursríka framtíð bæði ofaní og utan laugar.
Lok tímabilsins verða sem hér segir hjá einstökum hópum:
Gullfiskar, Silungar, Laxar og Sprettfiskar
Þessir hópar ljúka æfingum í kringum Landsbankamót. Það eru engar æfingar í þessum hópum eftir Landsbankamót. Í sumar verður ÍRB með sumarnámskeið sem verður auglýst sérstaklega.
Sundmenn sem ná viðmiðum í Flugfiska á Landsbankamóti geta valið annað hvort að fara í sumarfrí og hefja æfingar í haust með Flugfiskum eða færa sig strax í Flugfiska og æfa með þeim þar til þau ljúka æfingum í lok maí.
Flugfiskar og Sverðfiskar
Þessir hópar æfa þar til í síðustu vikunni í maí og fara á Akranesleikana. Eftir Akranesleikana eru engar æfingar.
Sundmenn sem ná viðmiðum í Háhyrninga á Akranesleikunum geta valið að fara í sumarfrí og byrja að æfa með Háhyrningum í haust eða að færa sig strax í Háhyrninga og æfa með þeim þar til þeir fara í sumarfrí rétt fyrir AMÍ.
Háhyrningar
Þessi hópur æfir fram að AMÍ. Engar æfingar eru eftir AMÍ.
Sundmenn sem ná viðmiðum fyrir Framtíðarhóp á AMÍ geta valið að fara í sumarfrí og byrja að æfa með Framtíðarhóp í haust eða byrja strax að æfa með Framtíðarhóp.
Efstu hóparnir
Samkvæmt dagatali fara þessir hópar í sumarfrí laugardaginn 18. júlí eftir sumarmót ÍRB