Fréttir

Sumarmótið var frábær endir á tímabilinu
Sund | 20. júlí 2013

Sumarmótið var frábær endir á tímabilinu

Það sést vel á úrslitunum af sumarmótinu sem hér fylgja með hve frábæran endi á tímabilinu við áttum. Eftir tveggja vikna míní tækniæfingabúðir fyrir alla elstu sundmennina sáust miklar framfarir á þessu stutta móti.

Nú þegar hafist hefur verið handa við að skipuleggja keppnisferð til Luxemburg á næsta ári voru sumir svo spenntir að þeir voru strax farnir að skoða lágmörkin og náðu nokkrum á þessu litla móti. Mæting á mótið var framúrskarandi, sundmennirnir í afar góðum gír og foreldrahópurinn samstilltur að vanda í því að halda mótið.

Bestu þakkir öllsömul fyrir þessar frábærar síðustu vikur – hafið það nú meiriháttar gott sumarfríinu, sjáumst aftur 6. ágúst á síðdegisæfingu!

Úrslit föstudagur 25 m

Úrslit laugardagur 50 m