Sumarsund - Námskeið 3
Nú er komið að skráningu á tímabil 3 í sumarsundinu. Nýtt námskeið hefst mánudaginn 9. júlí og lýkur 20. júlí. Boðið verður upp á 3 hópa í Akurskóla ef þátttaka verður nægjanleg. Skráning hefst að kvöldi 2. júlí.
1. hópur kl. 8:30
2. hópur kl. 9:30
3. hópur kl. 10:30
Leiðbeinendur eru þjálfarar hjá ÍRB og þeim til aðstoðar eru afrekssundmenn úr röðum ÍRB.
Skráning fer fram á vefsíðum félaganna www.umfn.is/sund og www.keflavik.is/sund
Yfirumsjón með námskeiðunum hefur Hjördís Ólafsdóttir bibbifreysi@gmail.com
Þeir sem hafa verið hjá okkur fyrr í sumar velkomnir ásamt nýjum sundmönnum!
Verð fyrir námskeiðið er 6.000 kr.