Fréttir

Sumarsund - skráning hafin
Sund | 23. maí 2012

Sumarsund - skráning hafin

 

Boðið er upp á 2 vikna námskeið, 5 skipti í viku, samtals 10 skipti í senn.

Námskeiðin eru fyrir 2 ára og upp úr.

Í hverri laug er leiðbeinandi og 3-4 aðstoðarmenn ofan í lauginni sem eru sundmenn ÍRB.

Leiðbeinendur verða Hjördís Ólafsdóttir sundþjálfari hjá ÍRB, Jóna Helena Bjarnadóttir afrekssundkona og þjálfari hjá ÍRB og Davíð Hildiberg Aðalsteinsson afrekssundmaður.

Leitast er við að kenna yngstu börnunum vatnsöryggi og grunnhreyfingar sundtakanna með og án hjálpartækja. Markmið með kennslu eldri barnanna er að kenna þeim rétt sundtök án allra hjálpartækja.

Hægt er að skrá sig á heimasíðum félaganna www.umfn.is/sund og www.keflavik.is/sund frá 24. maí

Námskeið 1 er frá 11. til 22. júní. Skráningarfrestur til 8. júní.

Námskeið 2 er frá 25. júní til 6. júlí. Skráningarfrestur er til 22. júní.

Boðið verður upp á námskeið í sundlaugum Akurskóla í Innri Njarðvík og Heiðarskóla í Keflavík en við áskiljum okkur rétt til að sameina hópa vegna fjölda ef nauðsyn er á því þegar skráning liggur fyrir.

Hægt er að velja um tíma á morgnanna kl. 8:30, 9:30, 10:30, 11:30 og 12:30

Verð á hverju námskeiði er kr. 6.000. Athugið að hægt er að skrá barn á fleiri en eitt námskeið.

Þessi námskeið eru einnig fyrir þá sundmenn sem hafa verið að æfa með ÍRB. Þeir fá þá æfingar við hæfi.

Leiðbeiningar fyrir þá sem eru að nýskrá sig!