Fréttir

Sumarsundmót á miðvikudag og fimmtudag
Sund | 3. júlí 2012

Sumarsundmót á miðvikudag og fimmtudag

Nú styttist í sumarfrí og við ætlum að enda sundárið hjá elstu hópunum á sumarmóti. Mótið verður bæði miðvikudag og fimmtudag og hefst upphitun kl. 17.15 en mótið kl. 18.15. báða dagana. Mótið tekur um eina klukkustund hvorn dag. Engar æfingar verða eftir hádegi þessa tvo daga. Síðustu tvo dagana fyrir sumarfrí, föstudag og laugardag, æfir Framtíðarhópur með Afrekshópi.

Mótaskrár: Miðvikudagur   Fimmtudagur