Fréttir

Sunddómaranámskeið
Sund | 28. september 2012

Sunddómaranámskeið

Sunddómaranámskeið fyrir almenna sunddómara verður haldið, bóklegir hlutar, þriðjudaginn 2. október og fimmtudaginn 4. október, báða dagana frá kl. 18.00 - 21.00 (staðsetning auglýst síðar). Verklegi hluti námskeiðisins fer síðan fram laugardaginn 6. október á TYR Ægis sundmótinu (mæting í mótshlutana er kl. 8.30 og kl. 14.30) í Laugardal. Útskrifaðir nemar geta síðan dæmt sjálfir á TYR Ægismótinu sunnudaginn 7. október og á öðrum sundmótum eftir það.

Skráningar á námskeiðið eru annað hvort á þetta netfang eða netfangið sundsamband@sundsamband.is<mailto:sundsamband@sundsamband.is>. Við skráningu þarf að koma fram nafn, félag, netfang og símanúmer.