Fréttir

Sund | 11. apríl 2011

Sundmenn ÍRB enduðu meistaramótið með stæl

Sundmenn ÍRB héldu áfram að gera góða hluti á lokadegi Íslandsmeistaramótsins í sundi.  Erla Dögg Haraldsdóttir bætti enn einum titlinum í safnið þegar hún sigraði í 200 metra flugsundi, í sama sundi krækti Soffía Klemenzdóttir sér í bronsverðlaun, vel gert stúlkur.  Davíð Hildiberg Aðalsteinsson bætti sinn fyrri tíma til muna þegar hann sigraði í 100 metra baksundi, en Davíð var með talsverða yfirburði í baksundsgreinunum á mótinu.  Davíð lenti síðan í hörkukeppni í 200 metra skriðsundi þar sem hann endaði að lokum í öðru sæti.  Ólöf Edda Eðvarðsdóttir bætti eigið telpnamet í 200 metra flugsundi og náði einnig góðri bætingu í 200 metra bringusundi og hafnaði í því sundi í öðru sæti, Jóhanna Júlía Júlíusdóttir kom í humátt á eftir henni og tryggði sér þriðja sætið.  Árni Már Árnason náði stórgóðri bætingu í 200 metra bringusundi og hlaut að launum silfurverðlaun.  Kvennasveit ÍRB kræktu sér að lokum í bronsverðlaun í 4*100 metra fjórsundi en sveitina skipuðu þær Soffía Klemenzdóttir, Jóhanna Júlía Júlíusdóttir, Ólöf Edda Eðvarðsdóttir og Jóna Helena Bjarnadóttir.  Í heildina voru sundmenn ÍRB að bæta sinn fyrri árangur í yfir 80% tilvika sem er glæsilegur árangur.