Fréttir

Sund | 25. janúar 2012

Sundmenn ÍRB keppa í Sheffield

Great Britain Northern Region Championships

 

Um helgina fara 15 sundmenn frá ÍRB til Sheffield til þess að keppa á stóru sundmóti. Þetta mót er erfitt og lágmörkin voru svipuð og lágmörkin fyrir Íslenska landsliðið sem keppti í Lúxemburg á síðasta ári, svo það er mjög gott að vera með 15 sundmenn á þessu móti.

 

Keppnin stendur í 2 daga með riðlakeppni í 4 hlutum og úrslitum í 4 hlutum og aðeins 30 mínútna hlé á milli.

 

Sundmenn verða að takast á við það krefjandi verkefni að ferðast og keppa í mjög hröðum riðlum mjög frábrugðnu því sem gerist á ÍM25 og ÍM50.

 

Mótið er í 50 m laug og því góður undirbúningur fyrir ÍM50 sem verður í apríl.

 

Sundmenn verða að ná bestu tímum sínum og vera í sínu allra besta formi ef þeir ætla að ná í úrslitin sem eru í tveimur aldursflokkum.

 

Frekari upplýsingar um mótið sem og úrslit af mótinu má nálgast á þessari síðu:

 

http://www.asaner.org.uk/swim/index.php?option=com_docman&Itemid=83

 

Áfram ÍRB!