Fréttir

Sundmenn og foreldrar saman út að borða á Thai Keflavík
Sund | 15. október 2012

Sundmenn og foreldrar saman út að borða á Thai Keflavík

 

Flestir sundmenn í efstu hópunum og fjölskyldur þeirra hittust síðasa laugardag og borðuðu saman á veitingastaðnum Thai Keflavík. Kvöldið var skipulagt fyrir aðens viku síðan og gaman var að sjá hvað margir komust þó fyrirvarinn væri skammur. Maturinn var góður og krakkarnir fengu sér allir tvisvar af hlaðborðinu. Þetta var skemmtileg samverustund fyrir alla og gaman að ræða saman. Kærar þakkir til þeirra sem sáu um skipulagningu og til þeirra sem mættu.