Fréttir

Sund | 6. júní 2010

Sundmót Sjóarans síkáta

Sundmót Sjóarans síkáta fór fram í Grindavík í gær. Að venju var létt yfir mótinu og lagt upp með að hafa gaman af. Talsverður hópur okkar sundmanna tók þátt og var flottur bragur yfir hópnum, léttleiki og góð stemming. Davíð, Diljá, Kristófer og Jóna unnu stakkasundið sívinsæla og náðu þar með að landa hinum feiknastóra farandbíkar sem því fylgir. Davíð og Dilja urðu stigahæst í flokki sundmanna og 17 ára og eldri, Lilja í flokki kvenna 15 - 16 ára og Jóhanna og Einar í flokki sundmanna 13 - 14 ára.