Fréttir

Sundsjóðir iðkenda
Sund | 17. maí 2013

Sundsjóðir iðkenda

 

Sundmenn í elstu hópum okkar safna fé með ýmsum fjáröflunum. Sundmenn safna í sinn eigin sjóð og geta nýtt hann til þess að greiða fyrir keppnis- og æfingaferðir eða við kaup á æfinga-og keppnisfatnaði. Síðustu ár hefur Linda Gunnarsdóttir séð um að halda utan um sundsjóðina fyrir iðkendur Keflavíkur en nú hefur Guðmunda Róbertsdóttir tekið við keflinu og sér um sjóðinn fyrir Keflavík en Herdís Andrésdóttir sér áfram um sjóðina fyrir iðkendur Njarðvíkur. Við viljum þakka Lindu kærlega fyrir vel unnin störf.

Upplýsingar og beiðni um notkun veita:

Guðmunda Róbertsdóttir fyrir Keflavíkuriðkendur: mundarobb@gmail.com

Herdís Andrésdóttir fyrir Njarðvíkuriðkendur: herdis68@gmail.com