Fréttir

Sunneva Dögg valin í Ólympíuhóp unglinga!
Sund | 7. júlí 2014

Sunneva Dögg valin í Ólympíuhóp unglinga!

Frábærar fréttir voru að berast, Sunneva Dögg Friðriksdóttir hefur verið valin af FINA (alþjóða sundsambandinu) til þess að keppa á Ólympíuleikum unglinga sem haldnir verða í ágúst í Nanjing í Kína. Sunneva var valin til þess að keppa í 800 m skriðsundi.
Kristinn Þórarinsson úr Fjölni fékk staðfestingu í síðustu viku.
Á mótum af þessum styrkleika fá sundmenn með B-lágmörk tilkynningu þegar farið er að fylla upp í laus pláss sem eftir eru. Til hamingju Sunneva, við erum stolt af þér og hve mikið þú hefur lagt þig fram á tímabilinu!