Þriðja degi AMÍ lokið - stigastaða
Samantekt að loknum 3. degi AMÍ 2008
ÍRB heldur enn öruggri forystu og virðist fátt geta komið í veg fyrir 5. Aldursflokkameistaratitilinn í röð.
Þrjú glæsileg unglingamet í dag:)
Sindri Þór Jakobsson ÍRB setti piltamet í 100m flugsundi þegar hann synti á 55,79mín. og bætti met Arnar Arnarsonar SH frá því 1998 um 91/100 úr sek.
Hrafnhildur Luthersdóttir SH setti rétt í þessu stúlknamet, þegar hún synti 200m bringusund á 2:31.51 mín. en fyrra met átti Erla Dögg Haraldsóttir, 2:32.90 mín, sem var sett í Vestmannaeyjum 2004.
Drengjasveit (13-14ára) SH setti nýtt drengjamet í 4x50 m. skriðsundi þegar þeir syntu á 1:48.49 mín.og bættu met ÍRB frá 2007 um 3,21sekúndu.
Sveitina skipa Njáll Þrastarson, Predrag Milos, Sigurður Friðrik Kristjánsson og Kolbeinn Hrafnkelsson.
Þegar þriðja degi AMÍ lauk var Metamót í Vatnaveröld. Þar reyndi Erla Dögg Haraldsdóttir við Íslandsmet í 100 bringusundi í 25m laug. Tilraunin tókst og setti Erla Dögg nýtt met á tímanum 1:08,58. Glæsilegt!! Hér má sjá myndband af Íslandsmetinu. Myndbandið er af vef Víkurfrétta!
Sæti | Lið | Stig |
1 | ÍRB | 3014 |
2 | Ægir | 2649,5 |
3 | SH | 1576 |
4 | Óðinn | 1483 |
5 | KR | 1398 |
6 | ÍA | 890 |
7 | Fjölnir | 770 |
8 | Breiðablik | 311 |
9 | Vestri | 276 |
10 | Ármann | 193 |
11 | Afturelding | 125,5 |
12 | UMFG | 52 |
13 | UMSB | 46 |
14 | Selfoss | 34 |
15 | Stjarnan |
12 |