Fréttir

Sund | 14. júlí 2009

Þriðja gull Sindra á norska meistaramótinu

Sindri Þór Jakobsson bætti þriðju gullverðlaunum sínum í safnið með glæsilegu sundi 2.03.27 eða einungis 3/10 frá nokkra daga gömlu íslandsmeti hans í greininni. Þetta var greinilega spennandi sund því í öðru sæti var ÓL fari Norðmanna frá Beijing 2008, Gard Kvale á tímanum 2.03.64. Glæsilegt hjá þér Sindri :-) Stjórn og þjálfarar.