Fréttir

Sund | 26. ágúst 2010

Tímamótaskráning sundmanna tókst vel :-)

Síðastliðinn þriðjudag var skráning sundmanna fyrir nýtt æfingatímabil. Skráningin fór fram í Vatnaveröld og tókst einkar vel, það mætti mikið af fólki og myndaðist nokkurs konar kaffishúsastemming. Þessi atburður markaði tímamót, þar sem allir sundmenn sunddeilda Keflavíkur og Njarðvíkur munu á þessu sundtímabili æfa og keppa undir merkjum ÍRB, í umsjón Sundráðs ÍRB. Það ríkir mikil og góð stemming innan ÍRB og er það trú okkar að sunddeildir Njarðvíkur og Keflavíkur muni stækka og styrkjast enn frekar á komandi árum og ná glæsilegum árangri undir merkjum ÍRB. Áfram ÍRB!

Myndirnar hér að neðan sýna Júlla Friðriks umvafinn fánunum okkar og þær Ástu, Hjördísi og Herdísi vinna úr skráningarblöðum.