Fréttir

Tími til að láta hendur standa fram úr ermum- ÍM25 hefst í dag!
Sund | 16. nóvember 2012

Tími til að láta hendur standa fram úr ermum- ÍM25 hefst í dag!

 

ÍM25 hefst í dag, Íslandsmeistaramót í opum flokki. Á þessu móti er ekki keppt í aldursflokkum, allir keppast um sömu verðlaunin. Bestu sundmenn landsins frá liðum af öllu landinu munu keppa um helgina. Undirbúningur hjá okkur í ÍRB hefur gengið vel og nú er tími til að láta til sín taka. Liðið okkar er ungt en við erum tilbúin. Við hlökkum til að koma með upplýsingar um helgina af gengi liðsins. Áfram ÍRB!