Fréttir

Sund | 23. ágúst 2011

Tveir hópar fullskipaðir

Nú eru tveir hópar fullskipaðir. Þetta eru Sprettfiskar í Heiðarskóla og Silungar í Akurskóla. Við minnum á að enn eru pláss laus í öðrum hópum. Prufuæfing verður á morgun, miðvikudag, kl. 14:30-15:30. Þar geta sundmenn sem ekki hafa þegar skráð sig mætt og prufað og fengið að vita hvaða hópur hentar þeim.

Þeir sem vilja skrá sig á biðlista í þá hópa sem eru fullir gera það í gegnum skráningarsíðuna okkar og fara beint á biðlista í kerfinu.