Fréttir

Sund | 8. apríl 2011

Tveir Íslandsmeistaratitlar í sundi á IM-50

Árni Már Árnason varð í dag Íslandsmeistari í 100 metra skriðsundi.  Árni hafði talsverða yfiruburði í sundinu og var tæpum tveimur sekúndum á undan næsta manni.  Sömu sögu er að segja af Davíð Hildiberg Aðalsteinssyni sem sigraði 200 metra baksund með miklum mun.  Báðir þessir sundmenn settu í leiðinni ÍRB met, Njarðvíkurmet og Keflavíkurmet.  Davíð hlaut einnig silfurverðlaun í 50 metra flugsundi og Árni sömuleiðis í 100 metra bringusundi.  Ólöf Edda Eðvarðsdóttir setti tvisvar sinnum íslenskt telpnamet í 400 metra fjórsundi og þá í leiðinni ÍRB og Keflavíkurmet.  Fyrst setti hún met í undanrásum þegar hún bætti metið um 8 sekúndur og bætti svo um betur og bætti metið um 4 sekúndur í úrslitum og hafnaði í öðru sæti.  Jóna Helena Bjarnadóttir synti einnig glæsilegt 400 metra fjórsund og hafnaði í þriðja sæti.  Jóhanna Júlía Júlíusdóttir synti 200 metra baksund með glæsilegum hætti en Jóhanna sem er einungis 15 ára gömul setti hvoru tveggja ÍRB og Keflavíkurmet í kvenna- og stúlknaflokki. Erla Dögg Haraldsdóttir setti ÍRB og Njarðvíkurmet þegar hún náði þriðja sæti í 50 flugsundi.  Einnig krækti Erla sér í silfurverðlaun í 100 metra bringusundi.  Soffía Klemenzdóttir hlaut bronsverðlaun þegar hún bætti sinn fyrri árangur í 200 metra baksundi.  Þar að auki náðu 6 sundmenn lágmörkum í hin ýmsu landsliðsverkefni sem fram fara á næstu mánuðum.  Mótið er nú hálfnað og verður fróðlegt að fylgjast með árangri ÍRB næstu tvo dagana en þess má geta að sundmenn ÍRB hafa bætt sinn fyrri árangur í yfir 80% tilvika.

Fleiri myndir í myndasafni.