Fréttir

Sund | 30. júní 2010

Tveir sundmenn ÍRB keppa á NÆM

Tvær sundkonur úr ÍRB munu um næstu helgi keppa í Drammen í Noregi á Norðurlandameisaramóti Æskunnar. Þær stúlkur úr ÍRB sem náðu lágmörkum fyrir mótið og keppa í Noregi fyrir Íslands hönd eru þær Jóhanna Júlía Júlíusdóttir og Ólöf Edda Eðvarðsdóttir. Frábær árangur hjá þessum stúlkum sem eru í fararbroddi í sínum aldursflokki hér á Fróni. Gaman verður að fylgajst með þeim í keppni við jafnöldrur sínar frá hinum norðurlöndunum. Til hamingju stúlkur og gangi ykkur vel um helgina. Stjórn og þjálfarar :-) Hægt er að fylgjast með þeim á tenglum hér fyrir neðan.

Ýmsar upplýsingar og startlistinn.

Live timing.