Tvö Íslandsmet hjá Má um helgina
Már Gunnarsson ÍRB sýndi að hann er í mjög góðu formi fyrir HM sem fram fer í byrjun desember, en hann setti tvö íslandsmet á sundmóti SH um helgina.
Már setti met í 50m og 200m baksundi, hann bætti metið um tæplega tvær sekúndur í 50m baksundi, og um tæplega 12 sekúndur í 200m baksundi.