Fréttir

Sund | 4. desember 2011

Tvö ný Íslandsmet og fjöldi innanfélagsmeta á langsundmóti ÍRB

Þau Sunneva Dögg Friðriksdóttir og Eiríkur Ingi Ólafsson náðu sínum fyrstu Íslandsmetum á langsundmóti ÍRB í 50 m laug sem fram fór laugardaginn 3. desember í Vatnaveröld. Mörg innanfélagsmet voru einnig slegin og margir voru annað hvort að synda sitt fyrsta langsund eða bæta tíma sína verulega. Metaskrár og úrslit mótsins eru komin á vefinn og einnig hafa XLR8 og Ofurhugalistar verið uppfærðir.