Fréttir

Sund | 2. október 2010

Týs mót Ægis í Laugardalslaug

Nú stendur yfir Týs mót Ægis í Laugardalslauginni og eru margir sundmenn frá okkur í ÍRB. Sundmennirnir eru á öllum aldri, frá 7 ára og uppúr. Krakkarnir eru að synda mjög flott sund og eru flestir að bæta tíma sína töluvert. Gaman er að sjá hversu margir ungir sundmenn eru að synda á mótinu og greinilegt er að framtíðin er björt hjá okkur í ÍRB. Myndir af mótinu koma fljótlega eftir helgi.