Fréttir

Sund | 10. desember 2010

Unglingalandsliðið á NMU i Kaupmannahöfn

Nú í morgun héldu til Kaupmannahafnar sex sundmenn til að keppa á Norðurlandameistaramóti unglinga sem fram fer í sundlauginni á Kastrup. Keppnin hefst á morgun laugardag fyrsti hluti kl: 09:00, annar hluti kl:17.00 og þriðji hluti er svo á sunnudag kl:09:00.
Hægt verður að fylgjast með úrslitunum á  – www.livetiming.dk
Einnig verður hægt að fylgjast með mótinuu í gengum heimasíðu Danska sundsambandsins – www.svoem.dk/njm
Í liðinu eru Anton Sveinn Mckee Ægi, Eygló Ósk Gústafsdóttir Ægi, Jóhanna Júlía Júlíusdóttir ÍRB, Kolbeinn Hrafnkelsson SH, Njáll Þrastarson SH og Salome Jónsdóttir ÍA. Með þeim í för er Jacky Pellerin þjálfari og Ragnheiður Runólfsdóttir fararstjóri.

Af heimasíðu Sundsambandsins.