Fréttir

Sund | 14. nóvember 2011

Uppskeruhátíð SSÍ

Á uppskeruhátíð Sundsambands Íslands sem haldin var sunnudagskvöldið 13. nóvember í tengslum við ÍM25 fékk ÍRB Hvatningarverðlaun SSÍ. Hvatningarverðlaunin eru veitt félaginu fyrir öflugt unglingastarf og uppbyggingu ungs liðs. Þá hlaut Anthony D. Kattan yfirþjálfari liðsins titilinn Unglingaþjálfari ársins 2011 og Sigmar Björnsson var valinn dómari ársins.

Frábær árangur hjá okkar fólki og okkar frábæra unga liði.