Úrslit í 1. deild Bikarkeppninnar
Úrslit Bikarkeppninnar í sundi eru ljós. Kvennalið okkar hafnaði í 2. sæti og karlaliðið hafnaði í 3. sæti.
Bikarmeistarar í 1. deild kvenna er sundfélagið Ægir með 16.826 stig og Bikarmeistar í 1. deild karla Sundfélag Hafnarfjarðar með 15.037 stig.
Markverðasta árangri okkar fólks náði Ólöf Edda Eðvarðsdóttir en hún gerði sér lítið fyrir og setti tvö íslensk meyjamet í sama sundinu er hún synti 200 m bringusund fyrr í dag.
Hún setti met í 100 m bringusundi í millitíma á 200m sundinu, á tímanum 1:23,06 gamla metið var 1:24.28 og var það Jóhanna Júlíusdóttir ÍRB sem átti það met frá árinu 2008 og seinna metið var lokatíminn í 200 m bringusundi en þar synti hún á tímanum 2:52,21 en hún átti það met sjálf frá því í mars á þessu ári.Til hamingju Ólöf :-) Stjórn og þjálfarar.
Stigastaða 1. deildar:
Kvenna Ægir 16.826
ÍRB 15.105
Óðinn 13.346
ÍA 13.249
KR 12.700
SH 12.464
Karla SH 15.037
Ægir 14.630
ÍRB 13.439
KR 12.421
ÍA 12.279
Óðinn 11.423