Fréttir

Vel heppnað áheitasjósund
Sund | 5. september 2015

Vel heppnað áheitasjósund

Í gær syntu elstu sundmenn ÍRB áheitasjósund frá Víkingaheimum að Keflavíkurhöfn í blíðskapar veðri. Krakkarnir skiptust á að synda á leiðinni en syntu svo öll saman síðasta spölinn. Eftir sundið var boðið upp á heitt kakó og kringlur. Sundið gekk vel og nutu sundmennirnir aðstoðar Björgunnarsveitarinnar Suðurnes. 

Kærar þakkir til allra sem styrktu krakkana og þið sem aðstoðuð við framkvæmdina. Sérstakar þakkir til Björgunarsveitarinnar en án hennar væri þetta ekki hægt.