Vel heppnaður æfingadagur
Sundmenn úr Sverðfiskum, Flugfiskum og Sprettfiskum og þjálfararnir Hjördís, Helga, ÓlöfEdda og Anthony áttu saman góða stund á æfingadegi í Vatnaveröld síðasta laugardag.
Tilgangur æfingabúðanna var að undirbúa krakkana fyrir fyrsta mót vetrarins sem er næstu helgi.
Krakkarnir æfðu sig í öllum þeim greinum sem þau ætla að keppa í á Ármannsmótinu og eru því búin að prófa að keppa sín á milli í 25 m laug.
Gangi ykkur vel um næstu helgi :)