Fréttir

Sund | 5. febrúar 2012

Vel heppnuð ferð á Meistaramót N-Bretlands í Sheffield

Síðustu vikuna í janúar hélt sterkt lið 15 sundmanna ásamt þremur starfsmönnum til Sheffield á Bretlandi til þess að keppa á Meistaramóti N-Bretlands (Great Britain Northern Region Championships).

Ferðalagið á áfangastað gekk vel og skilaði vélin hópnum nánast upp að dyrum. Mótið var mjög sterkt og tilgangurinn með ferðinni var að gefa sundmönnunum okkar tækifæri til þess að keppa við öflugri sundmenn en þeir hafa áður gert og það er öruggt að því markmiði var náð. Við fórum einnig saman út að borða og slökuðum á með því að skoða okkur um og kíkja aðeins í búðir í miðbæ Sheffield. Laugin var frábær og við vorum virkir þáttakendur í mótinu þar sem ekkert stoppaði okkur.

Þó keppnin væri hörð stóðu okkar sundmenn sig vel og margir náðu í úrslit. Hér er samantekt yfir það helsta:

Sá sundmaður sem náði einna bestum árangri var Berglind Björgvinsdóttir. Hún náði í frábæru 200 m bringusundi í úrslitum þar sem hún bætti tíma sinn um eina sekúndu, tíma sem hún náði í riðlakeppninni en þar bætti hún sinn besta tíma um 4 sek. Berglind náði 4. sæti í keppninni og synti í tveimur úrslitum. Vel gert Berglind!!!

Flestum FINA stigum í Stúlknaflokki náði Jóhanna Júlía Júlíusdóttir sem bætti tíma sinn um 6,5 sekúndur og náði 658 FINA stigum. Flest FINA stig í Piltaflokki náði Kristófer Sigurðsson með ótrúlegu sundi í 400 m skrið í riðlakeppninni, synti jafnhratt allan tímann og bætti einnig tíma sinn um 6,5 sekúndur með 629 FINA stig. Bæði náðu þau einnig í úrslit í einni grein.

Mótið var spennandi fyrir Írisi Ósk Hilmarsdóttur en hún bætti tvö ÍRB met í 100 m og 200 m baksundi og náði í úrslit í einni grein. Baldvin Sigmarsson synti líka í einum úrslitum í 400 m fjórsundi og bætti Keflavíkur og ÍRB met karla í sama sundi.

Laufey Jóna Jónsdóttir og Svanfríður Steingrímsdóttir syntu báðar í tveimur úrslitum og bættu tíma sína mikið á mótinu.

Flestir sundmennn náðu 100% bestu tímum og bættu tíma sína mikið. Vel gert. Annað markmið á mótinu var að ná umreiknuðum tímum úr stuttri laug og tókst það hjá mörgum, hjá sumum í fyrsta sinn! Það er svo sannarlega skref í rétta átt.

Carla og Elsie eiga þakkir skilið en þær fylgdu liðinu sem nuddari og fararstjóri. Takk fyrir alla vinnuna og góða samveru í ferðinni

.