Fréttir

Sund | 18. nóvember 2010

Vinamót í sundi

Flott sundmót fór fram í Vatnaveröldinni í gær. Þar kepptu ungir sundmenn úr ÍRB og Breiðablik en þetta er fyrsta mótið sem þessi félög halda saman í samstarfi. Mikil stemming var á mótinu og margir flottir tímar náðust. Þegar mótinu lauk fengu allir keppendur pizzu og fóru sáttir, þreyttir og sælir heim. Vonandi koma þessi Vinamót til að verða fastur liður í starfinu því þetta var einkar ánægjuleg kvöldstund. Við þökkum Breiðabliksliðinu innilega fyrir komuna og hlökkum til þess að fara til þeirra.