Vertu með

Prufuæfingar 2019

Nýir sundmenn mæta á prufuæfingu í Akurskóla föstudaginn 16. ágúst kl. 12:30-13:00. Þar metur Helena þjálfari hvaða hópur hentar best hverjum og einum.

Annars verða prufuæfingar í vetur eftir samkomulagi og fara fram í Akurskóla
Hafið samband við Jónu Helenu þjálfara, S: 849-0222 netfang: jonahelena@gmail.com

Sundskólahóparnir Gullfiskar og Silungar raðast sjálfkrafa eftir aldri.
Í hópa frá Löxum og uppúr er raðað eftir getu.

Eingöngu nýir meðlimir fara á prufuæfingu.
Aðrir sundmenn tilheyra áfram þeim hópi sem þeir eru í þangað til þeir fá boð um tilfærslu.

 

Ef þú hefur áhuga á að vera í okkar frábæra sundliði þá finnur þú hér  gjaldskrána, æfingartöflur og upplýsingar um æfingahópana okkar.

Gjaldkeri félagsins veitir upplýsingar um skráningar og öllu sem því við kemur. Gjaldkeri Sunddeildar Keflavíkur er Lilja Dögg Karlsdóttir
GSM: 821 6379 Netfang: gjaldkeri.sk@gmail.com