Fréttir

Sund | 21. apríl 2026

Volvomót Ármanns

Það var flottur hópur sundmanna frá ÍRB sem tóku þátt á Volvomóti Ármanns helgina 17.-19.apríl 2026. 

Mikið var um bætingar hjá sundmönnum okkar og náðum við í fjölmörg verðlaun. 

Tvö innanfélagsmet féllu um helgina. Franek setti innanfélagsmet 1500m skriðsund í flokki Sveina (Kef met) og svo bætti boðsundssveitin okkar metið í 4x50m skriðsundi sem var sett árið 2007, sveitina skipuðu: Denas Kazulis, Fannar Snævar Hauksson, Daði Rafn Falsson, Guðmundur Leo Rafnsson. 

Glæsilegur árangur hjá öllu okkar sundfólki um helgina! 😊

 

Myndasafn